Íris

Íris

 
Vefhringur
< ? iCeBloG # >

 

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

27.3.03

 
Fór í þessa vinnu í dag og það var bara allveg ágætt. Var að þrífa á svona félagsmiðstöð fyrir gamalt fólk, eða hvað þetta nú kallast (lokalcenter...). Ég bjóst nú við að það væru bara arabar þarna afþví að þetta er í arabahverfinu, en það voru fullt af Dönum. Þetta var nú bara hangs, konan sem ég var að þrífa með var alltaf í reykingarpásum og ég held við höfum unnið í um 2 tíma af þessum 6 sem við áttum að vera að vinna...svoldið asnalegt að drífa þetta ekki bara af og fara svo heim, en ég fékk víst engu um það að ráða...!!!

Já allavega þá er ég búin að ákveða nákvæmlega hvernig ég ætla að innrétta nýju íbúðina mína, get ekki beðið eftir að fá almennilega vinnu svo ég geti farið að versla fleiri húsgögn!!! Náði reyndar ekki í eigandan af íbúðinni minni í dag, en ég efast um að þetta verði eitthvað mál, það er svo mikill íbúðaskortur hérna að það verður ekkert mál fyrir mig að redda nýjum leigjanda.

Svo er Íslendingapartýið á morgun, can´t hardly wait...held það verði fullt af fólki þarna, allavega eru allir að fara sem ég þekki...



Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$> (0) comments
Sendu inn athugasemd