Íris

Íris

 
Vefhringur
< ? iCeBloG # >

 

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

29.6.06

 
www.blog.central.is/iristhord



18.12.03

 
jæja bara eitt próf eftir, get ekki beðið eftir að komast í jólafrí! hér eru nokkur góð ráð ef maður vill falla á prófi með stæl...væri allveg gaman að prófa þetta...bara svona til að sjá viðbrögðin... ;o)

- Taktu með þér kodda. Leggðu þig þangað til svona 5mín eru eftir af prófinu, öskraðu þá.."ahhhllllveg rétt, prófið var í dag!!"

- Fáðu eintak af prófinu, hlauptu svo út úr stofuni öskrandi "loksins!! loksins!!"

- Ef þetta er stærðfræðipróf, svaraðu i löngum setningum... ef þetta er ritgerðarpróf, svaraðu í tölum

- Gerðu pappírsskutlu úr prófinu og miðaðu á kennarann

- Talaðu alla leið í gegnum prófið! Lestu spurningarnar upphátt og farðu svo að rífast við sjálfan þig hvert rétta svarið skyldi vera. Ef þú ert beðin um að hætta, segðu "jújú, og þú getur bara heyrt mig hugsa" .....talaðu svo um hvað kennarinn er mikið fíbbl.

- Eftir svona 5mín af prófinu... kallaðu þá á kennarann "hvað er þetta?? ég hef mætt í tíma alla önnina og ég skil ekkert í þessu!!! og hver ert þú eiginlega?!?!

- Neitaðu að svara spurningum... t.d. ég neita að svara þessari spurningu því hún skarðast á við trúarbrögð mín!!

- Hlauptu inní stofuna þegar prófið er rétt byrjað... segðu við kennarann "þeir fundu mig... ég verð að flyja land!" og hlauptu út aftur!

- Eftir svona 5mín af prófinu, stattu upp, rífðu það niður í pínulitla búta og hentu uppí loftið og öskraðu GLEÐILEG JÓL!! ....biddu kennarann um annað próf og segðu að þú hafir tynt hinu...

- Skrifaðu svörin með vaxlitum eða vatnsmálningu

- Mættu í prófið í sandölum, baðslopp og handklæði á hausnum.

- Fáðu alltíeinu kast af Tourette's Syndrome í miðju prófi...

- Svaraðu prófinu á einhverju öðru tungumáli! ... ef þú kannt ekki annað tungumál, gerðu þitt eigið tungumál!!

- Hentu drasli í kennarann þegar hann er ekki að horfa... bentu svo á sessunaut þinn!

- Strax og kennarinn lætur þig fá prófið... éttu það!

- Komdu með heilt kvikmyndatökulið með þér og segðu að þú viljir taka prófið upp!

- Á 5 mínútna fresti, taktu saman allt draslið þitt, sestu annarstaðar og heldur áfram að taka prófið

- Fáðu prófið, eftir tíu mínútur, dúndraðu prófinu í borðið þitt, öskraðu "til anskotans með þetta próf!!" og labbaðu hetjulega út!

- Fáðu fólk til að mótmæla prófinu... (með spjöldum og alles)

- Mættu algjörlega haugafullur!!! (haugafullur: sumsé miklar líkur að þú ælir)

- Vertu endalaust að segja hversu sexí kennarinn er þennan daginn!

- Þegar þú labbar inn... kvartaðu yfir hitanum... strippaðu

- Reyndu að fá sessunautana til að gera “bylgju”



12.9.03

 
Ég veit, ég veit...it´s been a while og ég veit ekkert hvað mun liða langur timi á milli næstu blogga, lofa engu!!

Það er bara fullt að frétta af mér (man nú samt ekki allt...) Það var bara allveg frábært í vinnunni minni í sumar, var í heimahjúkruninni á sjúkrahúsinu og ég kynntist allveg fullt af fólki þar (þó flestum yfir sjötugt...)en það var bara fínt og ég lærði allveg helling.

Fór til Glasgow í verslunarferð með mömmu og Svövu rétt áður en ég hætti að vinna og get ekki annað sagt en að ég hafi verslað yfir mig...eyddi aðeins meir en ég ætlaði mér, s.s allveg frábært að versla þarna og ég ætla að reyna að fara oftar!!

Svo er skólinn auðvita byrjaður, ég er í hjúkrun og í tímum í sal eitt í kringlubíói!! Svoldið skrýtið að vera þar á hverjum degi, en fínt að geta kíkt í búðir og svona í frímínútunum! Við erum um 230 stelpur og 6 strákar!! ég held að tveir af þessum strákum séu þarna bara uppá hösslið(enda ekkert vitlaust) og svo eru hinir örugglega hommar...Það er voða stress í fólkinu í deildinni, enda komast bara 75 inn eftir clausus, ég er mjög fegin að það er ekki á mínu plani að komast inn, enda ætla ég bara að reyna að fá góða einkun og sækja svo aftur um í læknisfræði.

Átti afmæli á þriðjudaginn...finnst ég orðin eitthvað svo gömul. Gerði ekki neitt, það komu bara nokkrir gestir og ég fékk pakka ;o)

Svava var að flytja á Akureyri í dag, er að fara í MA...mér finnst eitthvað svo skrýtið hvað hún er gömul...á eftir að sakna þess að geta ekki dregið hana með mér að taka spólu og að senda hana útí sjoppu að kaupa nammi og svona ;o)

Annars er vísindaferð hjá hjúkrunardeildinni á morgun, veit ekki hvort ég komist, hef engan bíl, fjölskyldan er á honum á Akureyri, eigum víst bara einn bíl þangað til í endan september, fáum þá nýjan Bensjeppa...hlakka mikið til, enda ætla ég ekki að kaupa mér nýjan bíl strax.

jæja nenni ekki að segja meir, er orðin þreytt...reyni að skrifa fljótlega, en eins og ég sagði fyrr þá lofa ég engu :o)



31.5.03

 
Jæja...ætli það sé ekki kominn tími á að ég fari að skrifa eitthvað hér...búin að vera í nógu löngu fríi held ég bara!!

Pabbi og krakkarnir komu út til mín 18 apríl og við gistum eina nótt í köben, fórum í tívolí og svona :o) Svo pökkuðum við bara öllu draslinu og fórum heim 22. Síðan þá er nú ekki mikið búið að gerast...jú ég er byrjuð að vinna, ég er að vinna uppá sjúkrahúsi í heimahjúkruninni, og finnst það bara allveg frábært!! Þannig að ef þið farið að t.d brjóta á ykkur báðar hendurnar eða einhver svoleiðis skemmtilegheit þá er aldrei að vita nema ég komi heim til ykkar og baði ykkur...hugsa sér heppnina ;o)

Svo var ég módel hjá Mögnu á Kaffi sólon um daginn (ok fyrir 2 vikum síðan...) og breytti aðeins hárinu á mér, er orðin meiri dökkhærð og komin með fullt af styttum (gaman að vita ekki satt...)

Já og svo í gær fór ég í aðals-innflutningspartý til Halla og Erlu. Það var bara gaman að hitta alla krakkana aftur, var frír bjór og svona í boði...en ég er víst hætt að drekka svo ég drakk bara vatn...

Það er víst komið nokkuð á hreint að ég flyt ekki aftur út í haust, þósvo mig langi það óendanlega mikið (nennir ekki einhver bara að flytja með mér...) ég komst ekki inní skólann, sem ég bjóst nú pottþétt við, þar sem það er víst svoldið erfitt að komast inn þegar maður sækir um í fyrsta skiptið. En ég ÆTLA mér að flytja eftir ár!! Það er á hreinu!!
Í haust er ég að hugsa um að fara bara í HÍ og taka ár í hjúkrunarfræði, bara til að undirbúa mig fyrir læknisfræðina.

En allavega þá verður barasta gaman hjá mér næstu tvær vikurnar, fjölskyldan er útá spáni og ég bara ein heima með píu (hundinn minn), í stóru húsi með 2 bíla...what´s a girl to do...er ekki eitthvað djamm á næstunni??



18.4.03

 
Mamma var að hringja í mig og ég er að fara að hitta pabba í köben núna á eftir!!! Ég verð þá ekki ein um páskana eftir allt saman(að borða pizzu í páskamat) !!!
Ég ætla að taka lestina eftir klukkutíma og svo ætlum við pabbi að gista á Scandic í köben í nótt og fara svo hingað til Árósa að pakka draslinu mínu á morgun, og komum líklegast heim á Þriðjudaginn!!! Jibbíjei!!! See you soon :o)



16.4.03

 
Kíkið á veðurgelluna og öfundið mig...hahahaha ;o) Það er spáð svona veðri (15-20 stiga hita) út alla páskana!!!

Annars er lítið að ganga...nenni eigilega ekki að tala um það, veit ekkert hvort ég komi heim fyrir páska :o(



11.4.03

 
Það kom strákur að skoða íbúðina mína áðan...litli súkkulaðihúðaði gaurinn....fallega....með aflitað hár og svo það fyndnasta og mest hallærislegasta af öllu, það var þessi þvílíki hvíti hárbrúskur uppúr bolnum hans...Yeah baby...!!
Nína er búin að vera hjá mér frá því á miðvikudag, vegna þess að hún skilaði íbúðinni sinni af sér þá. Svo fór ég með henni í morgun uppá lestarstöð því hún ætlar að gista tvær nætur í Köben áður en hún fer heim.
Annars gengur ekkert sérstaklega vel að leigja íbúðina út, aðallega vegna þess að fólki finnst hún of dýr miðað við stærð...sem ég skil óskup vel!!! Mér liggur nú svoldið á að komast heim þar sem ég er að fara í próf í maí í FS í þessum 2 eðlisfræðiáföngum sem ég er að taka utanskóla...hef nú samt ekki verið nógu dugleg læra kanski...
Já og fyrir utan að mig vantar að komast heim fyrir þessi próf...þá var ég að frétta að það væri Sálarball í Stapa á miðvikudaginn....úúú....I have to go!!!! Nú er bara að krossa puttana og vona að gellan sem ætlar að koma í fyrramálið að skoða íbúðina, taki hana...annars verð ég sko ekki sátt!!



7.4.03

 
Við fórum á Social Club og DNA á laugardeginum. Ég held ég hafi bara sjaldan skemmt mér eins vel!! Á DNA er bara svo geggjuð tónlist (r´n´b, rapp og hiphop) , og svo eru flestir bara klæddir í gallabuxur og hlýraboli, þannig að maður þarf ekkert að vera að spá svo mikið í hvernig maður er klæddur...Það voru nú teknar tvær myndir af okkur en ég ætla ekki að setja þær hérna...það er einhver rottusvipur á okkur öllum á þeim svo ég ætla að hlýfa ykkur fyrir því ;o)

Í gær komu 3 að skoða íbúðina og svo koma 2 eða 3 í kvöld og 2 á morgun...bara nóg að gera!! Ég held að ein af þeim sem komi á morgun taki hana, hún er að ferðast alla leiðina frá köben til að skoða hana, og vantar íbúð ASAP svo ég held ég láti hana fá hana, enda langar mig mest að flytja heim um næstu helgi. Annars gengur ekkert að selja húsgögnin...ætla að reyna að selja sófann, eldhúsborðið og stólana og svo hjólið mitt, nenni ekki að fara með þetta heim!! Þessir Danir vilja bara ekki kaupa neitt notað nema það kosti einhvern tíkall (ótrúlega nískir) svo það er voða erfitt að selja þetta, enda eru þetta allt ný húsgögn og ég keypti þau nú ekkert ódýr!!

Ég vann síðasta daginn í vinnunni í dag. Konurnar voru voða miðursín yfir að ég hafi unnið þarna svona stutt fþví þeim fannst ég svo dugleg...voru oft að skamma mig fyrir að vera of fljót með það sem ég átti að gera...